Félags- og tryggingamálaráðherra, Ásta R. Jóhannesdóttir, lagði fyrir Alþingi á 136. löggjafarþingi 2008–2009 skýrslu um aðgerðaáætlun gegn mansali.
Í skýrslunni er að finna fyrstu aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali ásamt greinargerð
sem ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum 17. mars 2009. Aðdraganda hennar er að rekja til samþykktar ríkisstjórnarinnar frá 7. desember 2007 um að ráðist yrði í gerð hennar að tillögu félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra. Félags- og tryggingamálaráðherra skipaði starfshóp í janúar 2008 sem ætlað var það hlutverk að fjalla um með hvaða hætti standa mætti að gerð og framkvæmd heildstæðrar áætlunar um aðgerðir gegn mansali á Íslandi. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum til félags- og tryggingamálaráðherra 16. mars 2009 sem lagði þær fyrir ríkisstjórnina daginn eftir til samþykktar.
Markmið aðgerðaáætlunarinnar er að koma betra skipulagi á þær aðgerðir sem nauðsynlegar
eru til þess að koma í veg fyrir mansal hér á landi og að mansal verði rannsakað nánar. Enn
fremur er að finna aðgerðir sem miða að forvörnum og fræðslu um málefnið sem og að aðstoð við þolendur og vernd þeirra verði tryggð. Þá er áhersla lögð á aðgerðir sem miða að því að gerendur verði sóttir til saka. Skýrsluna er að finna á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis.