DenmarkEstoniaFinlandGermanyIcelandLatviaLithuaniaNorwayPolandRussiaSwedenEnglish

Ráðstefna um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum í Háskólanum í Reykjavík dagana 19. og 20. maí 2009

19.05.09 - 20.05.09 | Steinunn Bergman

Samtökin Blátt áfram standa fyrir ráðstefnu um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum í Háskólanum í Reykjavík dagana 19. og 20. maí 2009. Markmið ráðstefnunnar er að skoða þær leiðir sem samfélagið getur farið til að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Þegar um er að ræða forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum,taka viðbrögð eins og ótti, reiði og afneitun yfirhöndina. Um leið og lagðar eru fram tillögur um að þessi mál séu rædd, blátt áfram og dregin fram í  dagsljósið þarf að taka ábyrgð á því að gefa gott fordæmi fyrir umhverfið. Það er gert með því að vekja athygli á þeim fjölda leiða sem eru færar til þess að fræðast um og   fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Á þessari ráðstefnu verður lögð áhersla á meðferðarúrræði fyrir þolendur og unga gerendur kynferðslegs ofbeldis. Á ráðstefnunni verður einnig haldið áfram að vekja fólk til umhugsunar um að ofneysla áfengis, fíkinefna og lyfjaneysla eru oft nátengd kynferðislegri misnotkun og eða öðrum áföllum í æsku, eins og fjölmargar rannsóknir gefa til kynna.

Ráðstefnan er öllum opin og fer fram á ensku. 9.500 kr. og 5.500 kr. fyrir nema. Fundarstjórar eru Guðrún Ebba Ólafsdóttir grunnskólakennari og Sigríður Björnsdóttir framkvæmdastjóri Blátt áfram. Allar helstu upplýsingar er að finna á www.blattafram.is eða hjá Svövu Björnsdóttur svava@blattafram.is

Verð

Samstarfsaðilar: Barnaverndarstofa, Háskólinn í Reykjavík, SAFT, Þekkingarsetrið Ás, Sólstafir Vestfjarða