SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd. Á vef SAFT er að finna heilræði fyrir foreldra og leiðbeiningar um örugga netnotkun barna sjá nánar á www.saft.is